• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Næstum þriggja vikna…

¡Hola amigos!

Þar sem Þóra frænka var farinn að kvarta undan fréttaleysinu þá verður maður nú að verða við ósk hennar um að gera bragarbót þar á, enda er hún komin á 39 viku með sinn eigin frumburð og þolir ekkert hangs og kjaftæði (eins og hún á ætt og skap til)!  Rennum í gegnum það helsta…

Sótti semsagt vagninn um daginn og vakti það þvílíka lukku, bæði hjá foreldrunum sem og skvísunni enda er óspart búið að nota gripinn og er sú stutta hæstánægð með hann.  Hún fellur líka alltaf beint í svefn þegar hann er settur í gír, móðir hennar til mikillar gleði.  Þær eru búnir að koma því í vana að taka alltaf rúnt í hádeginu og stefna á að halda því bara þannig.  Sú stutta er líka öll að stækka og dafna og er orðin töluvert minna þrútin og asnaleg.  Það var líka tímabært að hún hætti að líkjast föðurnum og færi að líkjast móðurinni meira, enda er hún töluvert meira fyrir augað… ;)

Hjúkkan kom aftur síðasta þriðjudag og mældi hana í bak og fyrir.  Skvísan hafði bætt á sig rúmlega 600 grömmum frá síðustu mælingu og lengjast um heila þrjá sentímetra sem myndi teljast nokkuð gott fyrir meðalmanninn, hún hefur semsagt þyngst um næstum 20% og lengst um ca. 6% á ekki lengri tíma, geri aðrir betur!  Við höfum fyrir vikið þurft að pakka niður minnstu stærð af fötum sem hún passar klárlega ekki í lengur og þurfum svo bráðlega að fara að huga að því að kaupa enn stærri föt.  Hún er auk þess dugleg við að spæna upp bleyjurnar, hafði að vísu vit á því að vera ekki að telja magnið.  Hún er líka orðin töluvert minna gul sem er alltaf jákvætt.  Fyrir vikið sefur hún minna og skrækir meira en það fylgir víst.  Hún er t.d. núna inni í herbergi með móður sinni eitthvað að kvarta, gaman af því…

Annars erum við bæði búin að panta gám og bóka far til Íslands.  Gámurinn mætir semsagt þriðjudaginn 13. október stundvíslega klukkan 10:00 þannig að allir verkbærir menn (konur eru líka menn) sem geta hjálpað til við að fylla gripinn eru vinsamlega beðnir að mæta á Bremensgade 17 rétt fyrir það.  Að sjálfsögðu verða veitingar í boði.  Svo fáum við að gista hjá Rön(n)su og Bruno eina nótt og fljúgum svo heim á Klakaland daginn eftir með áætlaðri lendingu klukkan rétt rúmlega 21:00 að staðartíma.  Geri ráð fyrir að einhver sjái um að koma rauða dreglinum fyrir í Leifsstöð… ;)

4 svör

  1. Jey! Og Sólveig frænka verður í vetrarfríi svo hún getur mikið hjálpað til fyrstu dagana :D ! Get eiginlega ekki beðið að fá ykkur heim!!

  2. Takk fyrir þetta kæri frændi. Gaman að heyra hvernig gengur :-)

  3. Yndislegt :) hlakka til að hitta nýju frænku

  4. Pant passa ýkt mikið og allt um jólin!!

Skildu eftir svar