• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Alveg týpískt júróvisjónkvöld…

Það er einhver helsamkynhneigður Hvítrússi að gaula núna á sjónvarpsskjánum, svona dæmigert kattabreim sem maður býst við frá Rússkí kabrúskí löndunum.  Gott ef að Svíar eru ekki bara næstir á svið með eitthvað dæmigert Abba-legt (eða kannski apalegt?!?) lag.  Er semsagt að reyna að gera mitt allra besta til að horfa EKKI á þessi ósköp, en þetta er eins og að horfa á ‘the best of the worst’ í t.d. American Idol, þetta er bara svo slæmt að maður VERÐUR að upplifa ömurðina.  Get þó allavega huggað mig við það að ég frestaði ekki fundi til að geta horft á þetta, ha, Eiki? Veit ekki hvað við nennum að vaka yfir þessu, verðum allavega að sjá kjólinn umtalaða… ;)

Krílið heldur áfram að vaxa og dafna, Þórunni til mikillar gleði og armæðu.  Hefur núna tekið uppá því að liðka sig í tíma og ótíma (krakkinn semsagt) með tilheyrandi spörkum og kýlingum, er jafnvel að ganga svo langt að halda fyrir henni vöku á kvöldin eða vekja hana á morgnana, byrjar gríðarlega vel.  Það vill að vísu svo skemmtilega til að í hvert sinn sem Þórunn kallar í mig til að koma og finna lætin þá snarhættir krakkinn, hef greinilega eitthvað lag á að róa hann niður med det samme, verður sennilega í mínum verkahring að koma honum í ró á kvöldin eftir útungunina… ;)

Erum búnir að spila þrjá leiki í viðbót í boltanum og unnum þá alla með markatölunni 19-3 (samanlagt semsagt).  Erum fyrir vikið á toppnum í deildinni, að vísu búnir að spila einum leik meira en næstu lið.  Stefnum væntanlega bara á áframhaldandi sigurgöngu enda ekkert annað í boði þegar vel gengur…

Þórunn lærir bara og lærir þessa dagana enda að fara í próf á þriðjudag og föstudag í næstu viku.  Þá er gleðin að vísu ekki yfirstaðin því að eftir það tekur við heill mánuður af kennslu í bráðalækningum sem lýkur svo með prófi 24. júní.  Eftir það má svo fara að kæla kampavínið (óáfengt) og byrja að fagna.  Bæði tengdó og gamla settið munu mæta á svæðið til að skála við okkur skötuhjúin auk þess sem við ætlum að halda upp á 100 ára afmælið hans pápa í leiðinni (4. júlí).  Svo verður bara lagst í leti (Þórunn semsagt) fram að útungun, skothelt plan! :D

En þá að föstum lið (sem hefur þó legið í dvala) hér á blogginu, tenglagleði!  Byrjum fyrst á þessu, man ekki hvort ég var búinn að henda þessu inn áður en það kemur ekki að sök, alltaf gaman af þessu.  Bónusstig fá þeir sem hafa actually séð allar þessar myndir (kemst skuggalega nálægt því, btw).  Svo rakst ég á þennan ‘brandara‘ um svínaflensuna, veit að maður á ekki að gera grín að þessu, en þetta er bara of fyndið (sérstaklega þetta neðsta), kolsvartur húmor af bestu gerð.  Þetta er líka helfyndið, enough said.  Gimmi sendi mér svo þetta, örsögu um Ítalann sem fór til Möltu, sjón/heyrn er sögu ríkari (eins og svo oft áður).  David Lynch var víst á landinu um daginn, að reyna að selja þetta!  Hlakka mikið til að frétta af fyrsta einstaklingnum til að komast á annað stig, það verður sögulegt, þurfum þá væntanlega að endurskoða þyngdarlögmálið og eitthvað fleira.  Ætla ekki að ‘halda í mér andanum’ samt… ;)

Og að lokum, af því að í dag er þriðjudagur (heppilega alveg að verða búinn), þá er rétt að minna á þetta:D

Áfram, eh, Þróttur!!

VIÐBÓT:  Yohanna (alveg glatað þegar fólk kann ekki að skrifa nafnið sitt) stóð sig bara ágætlega, leit út eins og Öskubuska í samansaumuðu þvottapokunum (lýsing í boði Sverris Stormskers).  Miðað við annað rusl þarna ætti hún að fara áfram.  En þar sem við vitum öll að þessi keppni snýst nákvæmlega ekkert um tónlist þá er það sennilega borin von… ;)

Skildu eftir svar