Fyndið að vera að óska fólki gleðilegs sumars í ljósi þess að á Íslandi var í morgun hitinn við frostmark og nýfallinn snjór í Esjunni. Að vísu upplifði ég það ekki persónulega þar sem ég var of upptekinn við góða vorveðrið hérna í Danmörku. Ekki það að ég hafi nýtt veðrið vel því ég er búinn að hanga inni í allan dag að glápa á sjónvarpið og liggja í leti, um að gera að nota frídagana í eitthvað gáfulegt, ekki satt?
Við hjónin skunduðum saman á Hvidovre hospital á dögunum í annað skann til að athuga hvort að krílið væri ekki á réttu róli. Það kom víst gríðarlega vel út, tvær hendur, tveir fætur, fjögur hjartahólf og litli heili á réttum stað. Að vísu var krílið með einhver bölvuð leiðindi því það harðneitaði að snúa ‘rétt’ þannig að það reyndist allt annað en auðvelt að fá að skoða andlitið en það hafðist að vísu að lokum. Hinsvegar ákvað krílið það fyrir okkur að við fáum að bíða fram til 4. sept. (ish) með að vita hvers kyns það er, bara gjörsamlega þvertók fyrir að sýna okkur sitt allra ‘heilagasta’. Oh, well…
Fótboltinn er farinn af stað aftur og erum við þegar búnir að spila þrjá leiki. Á einhvern óskiljanlegan hátt náðum við að tapa fyrsta leiknum á móti Íslendingunum á Kagsaa, ekkert annað en skandall þar sem allt var tínt til sem orsök, völlurinn, veðrið, boltinn, dómarinn, tími dags, gengi dollars og ávarp forseta. En það verður kannski bara að viðurkennast að við vorum einfaldlega skítlélegir og úrslitin því ekki ósanngjörn. En við tókum okkur aldeilis á í næsta leik og unnum hann 5-0 og síðasta þriðjudag unnum við svo aftur, 5-3. Ég var svo valinn maður leiksins með öllum greiddum atkvæðum Baldvins. Næsti leikur verður svo eftir helgina og er stefnt á áframhaldandi sigurgöngu…
Páskarnir runnu ljúflega niður. Fengum Guggu og Björgvin í mat á laugardagskvöldinu og buðum þeim uppá annað af tveimur lambalærum sem mamma hafði komið með hérna út á leið sinni til Mongólíu. Páskadagur fór svo í hefðbundið páskaeggjaát, mamma sá um að við færum ekki í páskakanínuna með því að færa okkur sitthvort páskaeggið frá Nóa og Síríus. Þau voru svo kláruð í smáum skömmtum vikuna á eftir, með tilheyrandi þyngdaraukningu, ógleði og klósettferðum…
Um síðustu helgi þá tókum við svo að okkur að passa Helgu Maríu í nánu samstarfi við Guggu og Björgvin. Ran(n)sa og Bruno voru nefnilega að fara í road-trip til Berlínar í tilefni af því að hún varð þrítug síðasta sunnudag. Við vorum með hana aðfararnótt föstudags og G+B tóku hana svo yfir til sín seinni nóttina. Það verður að viðurkennast að þetta var sennilega auðveldasta barnapössun sem ég hef upplifað, allavega föstudagskvöldið. Þórunn sótti skvísuna á leikskólann og kom með hana hérna heim, með góðri viðkomu á leikvellinum fyrir utan. Eftir smá matarbita smelltum við henni í sófann, vafða inn í teppi, og settum vídeómynd fyrir hana í gang. Ca. fimm mínútum síðar var hún sofnuð og svaf fram til átta daginn eftir. Þá var hún dregin út og við Björgvin fórum með hana í dýragarðinn. Hún entist þar í næstum þrjá tíma og þá var farið með hana heim til hennar þar sem hún gat leikið sér á meðan við Björgvin gláptum á sjónvarp. Það sama var svo uppi á teningnum daginn eftir, hún að leika sér og við að glápa á vídeó og tæma ísskáp foreldra hennar. Semsagt, alveg þægilegt og einfalt!
Gleðilegt sumar!
Flokkað undir: Standard raus



Gleðilegt sumar krúttin mín. Krílið er greinilega spéhrætt ;o).