Meiri frekjan í sumu fólki (nefni engin nöfn, en fyrsti stafurinn í nafninu er Budda frænka), ætlast til þess að maður bloggi bara og bloggi, helst daglega (jafnvel oftar) til að stytta því stundir! Gerir fólk sér enga grein fyrir því hversu mikið blóð, sviti og tár fara í hverja færslu hjá mér?!? (actually 0 ml, en það er aukaatriði…)
Fórum í bjústeið þarsíðustu helgi, var meira að segja löng helgi því við fórum af stað á fimmtudeginum á bílum Ragnhildar og Brunos, þau keyrðu og við hjónin, auk Björgvins og Guggu, fengum að fljóta með. Höfðum leigt bústað nálægt Sjællands Odde (google it) sem var öllum þægindum búinn, hiti í gólfum, sauna, spa baðkar og gervihnattasjónvarp. Afslappelset var í stuttu máli sagt gríðarlega mikið, mikið slakað á, mikið grillað, mikið étið og drukkið. Mest var þó bara haft gaman og það var helvíti sæll og glaður hópur sem hélt aftur í borg óttans á sunnudagskvöldinu. Hendum myndum af herlegheitunum inn þegar ég drattast til að import-a þeim…
Síðasta vika var svo ótrúlega róleg (að vanda), Þórunn var heima að ‘læra’ og ég var bara að vinna. Helgin var svo ámóta hefðbundin, fórum í göngutúr niður í bæ á laugardagseftirmiðdag og fengum okkur svo sushi í kvöldmat, kærkomið. Fór svo að horfa á handboltaleik á sunnudeginum en það vildi ekki betur til en svo að það endaði með því að ég spilaði hálfan leikinn í marki, varði nokkra bolta á ögurstundu og hjálpaði til við að tryggja sanngjarnan 32-31 sigur. Ágætis árangur það…
Næstu helgi er svo ferðinni heitið til land dauðans (Svíþjóðar) þar sem ég ætla að fara á skíði með þeim Eika, Gumma Þorkels og Jóa Solbakken. Þeir höfðu, við fjórða mann, pantað þar einhvern kofa í einhverri skíðabrekku en svo heltist sá fjórði úr lestinni. Þeir höfðu greinilega frétt af hæfileikum mínum í skíðabrekkunum og því var það nánast sjálfgefið að mér var boðið lausa plássið. Vona bara að ég nái að halda niðri gubbunni yfir allri svænskunni sem ég mun þurfa að þola alla helgina. Get huggað mig við það að ég kemst þó allavega á skíði þennan veturinn, maður verður víst ýmislegt að þola til þess…
Er annars byrjaður að undirbúa mig undir útgáfu 2.0, byrjaður að skoða leiðbeiningarmyndir um rétta meðhöndlun barna og þess háttar. Held að þetta ætti að reddast, þessar myndir eru frekar idiot proof. Spurning um að finna eitthvað myndband líka svo þetta verði 100%. Ef einhver rekst á slíkt má hann endilega láta mig vita, hafði t.d. ekki hugmynd um að börn væru ekki liðtæk í bekkpressu, alltaf lærir maður eitthvað nýtt…
Flokkað undir: Standard raus



Þetta er bara ágætis byrjun stubbur
. Þetta er ekki frekja, bara verið að halda þér við efnið
.
KEEP IT COMING !!!!!!!
Knús til þín, Tótlu og kúlubúans.