• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Dansk snestorm

Já, sæll! Við erum að tala um að núna, á nákvæmlega þessari stundu, er mesti vetur sem við hjónin höfum upplifað hérna í Danmörku! Að vísu snjóar ekki núna en það hefur snjóað grimmt undanfarna daga og hitinn í samræmi við það. Verð að viðurkenna að ég fíla þetta í ræmur! Verst að það er ekki hægt að spenna á sig skíðin og taka nokkrar ferðir. Fór í staðinn út að hlaupa bæði í gær og á þriðjudag, fínt að hlaupa í snjónum, ekki nóg með að maður þurfi að einbeita sér að því að fara áfram heldur líka að passa sig á því að húrra ekki á andlitið… :D

Að vísu hefur þessi hlaupagleði orðið til þess að ég hef kvefast hressilega, er með bullandi nefrennsli og þarf að snýta mér á ca. þriggja mínútna fresti. En það er bara fjör og gefur manni auk þess ástæðu til að standa upp úr stólnum reglulega og það getur aldrei verið annað en jákvætt!

Þórunn var í prófi á miðvikudag, munnlegu prófi í heimilislækningnum. Að vanda rúllaði hún því upp og þar með eru opinberlega bara fjórir mánuðir eftir af náminu hjá henni. Ótrúlegt að hugsa til þess að við vorum að pakka draslinu okkar saman til að flytja út í ágúst 2002 vitandi það að við yrðum lágmark sex ár hérna úti (með viðkomu í Osló, auðvitað). Þannig að nú er lag að nýta þessa fjóra mánuði í eitthvað gáfulegt, t.d. glápa á vídeó, borða nammi og drekka kók, hauuuuuuuu… ;)

Rakst á skrýtna frétt, hafði einhvern veginn haldið það að ef einhver þjóð myndi EKKI ritskoða bækur vegna ‘klámfengis’ þá væru það Danir. Eru greinlega teprulegri en ég hélt. Og svo, af því að það er föstudagur og United á toppnum, er gott að rifja upp þetta mark

Og af því að við erum komin út í fótbolta þá er kannski ágætt að minna á að Ísborg Open (innanhús fótboltamót) er á morgun, læt ykkur vita hvernig það gekk á sunnudag/mánudag (ish)… :D

Ein ummæli

  1. Finnst nú að læknirinn tilvonandi hefði getað sagt þér að maður kvefast ekki af því að fara út að hlaupa :D

    Og United er bara bóla. Springur á endanum (annað en Liverpool sem eru löngu sprungnir :) )

Skildu eftir svar