• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Another saturday night…

Ótrúlegt en satt þá kom barasta EKKERT fyrir mig í gær, þrátt fyrir föstudaginn þrettánda og allt það húmbúkk sem því fylgir. Ef ég væri forfallinn í trú minni á þetta myndi ég að vísu telja til að rétt missa af strætó og þurfa að standa úti í kuldanum í sex mínútur sem óheppni og skrifa það alfarið á dagsetninguna og um leið gleyma því að þetta sama hefur margoft komið fyrir áður, meira að segja ekki á föstudegi og jafnvel ekki þrettánda dag mánaðar. Ég ætla jafnvel ganga svo langt að segja að miðvikudagurinn ellefti hafi verið mun verri, allavega fyrir mig. Kannski það verði minn óhappadagur framvegis… :D

En hvað vorum við annars að gera í strætó? Jú, við hjónin fengum leikhúsmiða í jólagjöf og að sjálfsögðu nýttum við okkur þá til hins ítrasta. Fórum að sjá Phantom of the Opera í Nýja leikhúsinu á Gammel Kongevej. Það var bara hin prýðilegasta skemmtun! Verð þó að viðurkenna að ég hef eiginlega ekkert heyrt af þessu áður, kannski eitt og eitt lag á stagli, þannig að þetta var pínu nýtt fyrir mér. En það spillti ekkert fyrir, við skemmtum okkur allavega þrusuvel þrátt fyrir að sýningin hafi öll farið fram á dönsku. Leikararnir stóðu sig prýðilega og hljómsveitin rokkaði kofann. Fjögurra stjörnu kvöld, klárlega…

Annars fengum við líka töluverða skemmtun í strætisvagninum. Við hliðina á okkur sátu tvær danskar ‘ljóskur’ og voru að ræða sín á milli um ‘heimsspekileg’ málefni. Þær voru að velta fyrir sér hvað 400 ml væru margir desilítrar. Hvernig þær gátu hinsvegar fengið út að það væru tveir og hálfur desilíter er mér gjörsamlega hulið… ;)

3 svör

  1. tveir og hálfur desilítri?

  2. Æ….ég er nörd. Ég er ennþá flissandi yfir þessu með 400 ml og tvo og hálfan desilítra :)

Skildu eftir svar