• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Paraskavedekatriaphobia

Dagurinn í dag er töluvert merkilegur fyrir margra hluta sakir. Fyrir hjátrúarfulla er þetta auðvitað föstudagurinn þrettándi sem samkvæmt hjátrúnni er eitthvað sérstaklega slæmur því að ekki nóg með að þrettán sé óhappatala fyrir flesta (af óskilgreindri ástæðu) þá vilja menn líka meina að föstudagur sé óhappadagur (sem er fáránlegt, besti dagur vikunnar (allavega eftir klukkan fjögur-ish)). Það þýðir þá, í þeirra hjátrúarfulla huga, að blandan af þessum tveimur óhappa fyrirbærum verður meiri óheppni. Sem er fyndið í ljósi þess að skýrslur sýna að slysatíðni er alls ekkert meiri á föstudegi sem lendir á þrettánda degi mánaðar miðað við aðra föstudaga, er meira að segja minni. En gamla góða hjátrúin lifir auðvitað alltaf góðu lífi… ;)

Í dag er líka byrjað að halda uppá Singles Awareness Day eða SAD (sem er já, frekar sad), sem er einskonar mótvægi gegn Valentínusardeginum sem er á morgun. SAD er opinberlega á morgun en sumir einstæðingar kjósa að halda frekar uppá þennan ‘merka’ dag í dag eða á sunnudag til að þeirra merkisdagur falli ekki í skuggann af degi kaþólskra elskenda. Þessi dagur hefur líka verið kallaður Desperation Day en við látum það kannski bara liggja á milli hluta. Vil allavega minna mótmælatrúandi-ish Íslendinga á það að heilagur Valentínus tengist þeirra trúarbrögðum bara alls ekki neitt, enda rammkaþólskur í allar ættir. Bendi á að á sunnudaginn eftir viku er ágætis íslenskur ‘hátíðisdagur’ sem er á engan hátt trúartengdur og er kenndur við konur. Á morgun þarf Kaja mágkona samt væntanlega að gera eitthvað skemmtilegt fyrir brósa kallinn, sem getur hinsvegar, sökum kaþólskuleysis, algjörlega látið daginn framhjá sér fara. En fyrir þá sem endilega vilja gera eitthvað rómantískt í tilefni morgundagsins þá vona ég innilega að þeir lendi ekki í þessu;)

Og talandi um þau skötuhjú, gleymdi víst alveg að minnast á það að í gær átti Rebekka Guðfinna Pálsdóttir apaskott fimm ára afmæli! Við hjónin sendum mömmu með pakka til hennar frá okkur þannig að við gleymdum þessu víst ekki alveg. Þannig að, Rebekka, til hamingju með daginn í gær! (nb. hún les ekki bloggið mitt, vona að þessu verði bara komið til skila…)

Sá að inn á þing er kominn varamaður frá Frjálslyndum. Þetta væri ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að hún segist vera ‘teiknimiðill’ og að auki noti hún svokallað ’steinakast’ til að spá fyrir um óorðna hluti. Ekki nema von að allt sé á leiðinni á haugana á Íslandi, ég sem hélt að Kolbrún Halldórs væri mesta draslið á þinginu, þarf klárlega að endurskoða það… :D

Svo í lokin er hérna smá myndband með vini mínum Skrýtna Alla sem sýnir og sannar að palindrome er alltaf cool…

Góðar stundir.

Skildu eftir svar