• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Öskubuska

Var að keppa í handbolta í gær, minn fyrsta ‘landsleik’. Byrjaði í markinu og hafði það af að ‘verja’ eina blöðru fyrstu tuttugu mínútur leiksins sem hlýtur að teljast skelfilegur árangur. Var skipt útaf eftir það og mátti dúsa á bekknum þar til um sex mínútur lifðu eftir af leiknum. Kom þá [...]

Dansk snestorm

Já, sæll! Við erum að tala um að núna, á nákvæmlega þessari stundu, er mesti vetur sem við hjónin höfum upplifað hérna í Danmörku! Að vísu snjóar ekki núna en það hefur snjóað grimmt undanfarna daga og hitinn í samræmi við það. Verð að viðurkenna að ég fíla þetta í ræmur! [...]

Another saturday night…

Ótrúlegt en satt þá kom barasta EKKERT fyrir mig í gær, þrátt fyrir föstudaginn þrettánda og allt það húmbúkk sem því fylgir. Ef ég væri forfallinn í trú minni á þetta myndi ég að vísu telja til að rétt missa af strætó og þurfa að standa úti í kuldanum í sex mínútur sem óheppni [...]

Paraskavedekatriaphobia

Dagurinn í dag er töluvert merkilegur fyrir margra hluta sakir. Fyrir hjátrúarfulla er þetta auðvitað föstudagurinn þrettándi sem samkvæmt hjátrúnni er eitthvað sérstaklega slæmur því að ekki nóg með að þrettán sé óhappatala fyrir flesta (af óskilgreindri ástæðu) þá vilja menn líka meina að föstudagur sé óhappadagur (sem er fáránlegt, besti dagur vikunnar (allavega [...]

What comes around, goes around…

Í gær sannaðist hið fornkveðna um að maður skyldi fara varlega í að hlæja að óförum annarra því áður en maður vissi af væri maður sjálfur kominn í ógöngur. Ég var semsagt eitthvað að gera grín að pápa gamla og vandræðum hans með framtönnina í honum í síðustu færslu. Það grín má semsagt [...]

Buddublogg

Vil að það komi skýrt fram strax í upphafi að þetta blogg er skrifað EINGÖNGU til að ákveðnir ónafngreindir aðilar hafi eitthvað að gera í dag (eða morgun (eða hvenær sem þeir komast í að lesa þetta)), aðrir eru vinsamlega beðnir um að hætta lestri nú þegar! …eða lesa bara áfram, sama er mér… [...]

Punxsutawney Laddi

Enn og aftur er upp runninn uppáhalds dagur allra, Múrmelsdýrsdagurinn! Þessi skemmtilegasti dagur ársins þegar Punxsutawney Phil (sem er téð múrmeldýr) kemur út úr holunni sinni og segir löndum og lýðum til um það hvort að vetur sé á enda eða hvort hann muni vara í sex vikur enn. Spennan er allavega gríðarleg [...]