Jæja! Þórunn kláraði annað prófið sitt af þremur á þessari önn í gær. Munnlegt próf í ’samfélagslækningum’ sem ég skil ekki öðruvísi en svo að sé kennsla í því að lækna mein samfélagsins, leysa vanda aldraðra, fjölga plássum á leikskólum og létta undir með heimilislausum. Hvað það kemur læknisfræði við hef ég hinsvegar enga hugmynd um!
En fyrst við erum að tala um læknavísindi þá tók ég eftir því á þriðjudag að það var farið að smella ansi mikið í hnénu á mér (þessu sama og ákvað í bræði sinni að rífa sinn eigin liðþófa). Tók svo eftir því í gærkvöldi að það að labba upp tröppur (sem hefur verið til vandræða síðan í þessu bræðiskasti hnésins) var bara alls ekki eins vont og ég var farinn að venjast. Ákvað því að hringja í Dr. Afa bæklunarlækni (ath. hans rétta nafn), lýsti þessu fyrir honum og hann sagði mér að ég væri að öllum líkindum kominn með liðmús! En ég skyldi ekki hafa miklar áhyggjur af þessu, verkurinn í hnénu ætti að minnka en núna gæti ég átt það á hættu að læsast í hnénu við líklegustu og ólíklegustu tækifæri þar sem flipinn sem rifnaði upp á sínum tíma (og hefur núna rifnað frá) gæti skorðast þannig í liðnum að allt stæði fast. Hélt alltaf að gæludýr ættu að vera manni til ánægju og yndisauka, spurning hvort það sé hægt að láta lóga þessu bara…
Annars hef ég (enn sem komið er) haldið mig við hlaupaplanið mitt og er núna í sjöttu viku þess og hef ekki enn sleppt út degi (tel það ákveðið afrek líka). Samtals er ég þá kominn í 124.9 km (skekkjumörkin eru þó töluverð, +/- 3-4 km) en samt sem áður, næstum þrisvar sinnum maraþonvegalengd. Gerðist meira að segja svo djarfur um daginn að kaupa mér annan hlaupabol, þar til gerða hlaupasokka og að auki svona vatnsbrúsabelti svo ég geti a) verið með vatn með mér á hlaupunum og b) litið út eins og algjör fáviti á meðan hlaupunum stendur (því að smokkurinn var ekki nóg nefnilega). Ákvað að sjón væri sögu ríkari og já, svipurinn er hluti af setup-inu…
Tvö stórmenni kvöddu okkur á liðnum dögum. Fyrst Stan Winston (sá um brellurnar í stórmyndum á borð við Terminator, Aliens, Predator og Jurassic Park (sem er þó alls ekki stórmynd) ásamt fleiru) og svo George Carlin. George var grínari sem varð frægur fyrir ‘hin sjö dónalegu orð‘ sem bannað er að segja/spila/hafa eftir á öldum ljósvakans í USA. Hann var einnig annálaður trúleysingi og eyddi stórum hluta af gríni sínu í að gera grín að trúnni, t.d. hér að gera grín að boðorðunum 10. Respect. Hann hefði sennilega líka hlegið jafn dátt að þessu rugli og ég…
En að sjálfsögðu hef ég safnað glaðningi í sarpinn handa ykkur þarna úti frá því síðast (veit líka að Ingvi nennir ekki að skoða þetta annars). Fyrst eru hérna ansi skemmtilegar uppástungur varðandi hvað er hægt að gera við bílinn þegar bensínverðið er í sögulegu hámarki og fólk vill sem minnst hreyfa hann. Og fyrst við erum komin út í ‘neðanmittis’ pælingar þá vil ég benda fólki á nýtt tónlistarmyndband sem ég rakst á um daginn. Sennilega með fyndnari concept-um sem ég hef séð og prýðisgóð leið til að nota ‘blur’ stangirnar. Svo rakst ég á þessa frétt á dögunum. Ein spurning varðandi þetta, hver er tilgangurinn við það að fara á ströndina ef EKKERT af líkamanum kemst nokkurn tíma í tæri við sólina?!? Þessir múslimar eru pínu skrýtnir sumir hverjir…
Sverrir Stormsker er svo með áhugaverðan punkt í nýjustu færslunni hjá sér, tillitssemi er greinilega ekki alltaf það sama og tillitssemi. Erum einmitt að fara í flug á mánudag (þ.e. ef flugumferðarstjórar leyfa okkur það), spurning hvort við upplifum einn grenjandi grísling. Er annars alltaf með heyrnartól, truflar mig svosem ekki neitt. Grímur Jónsson sendi mér svo þetta skemmtilega myndband af hinum víðförla Matt, sjón er sögu ríkari (eins og svo oft áður). Hér er svo athyglisverð pæling fyrir comic-book lúðana (Björgvin, ég er að tala um þig hérna)…
Að lokum eru svo það svo íþróttirnar. Fyrst sjáum við Paul Hunt, sem er fimleikaþjálfari, í hinum ýmsu gervum taka æfingar á hinum ýmsustu áhöldum, fyrst á tvíslá, svo á jafnvægisslá og loks í gólfæfingunum. Og svo rétt í blálokin, fyrir fótboltaáhugamenn, góð vítaspyrna…
Flokkað undir: Standard raus



Shit hvað ég á eftir að ná að rústa þessu plani þínu í næstu viku. Nærð ekkert að hlaupa og verður fóðraður á nammi 24/7
Ég er búinn að vera með þessa færslu opna í klukkutíma og náði loksins að komast í gegnum hana. Þú ert deadly i þessu átfitti, hvaða leið labbarðu, ég ætla að reyna að ná mynd af þér löðrandi í svita að drekka kók úr þessum beltisbrúsa..