• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Friday the 13th!!

Las á blogginu hans Jonna í gær að hann er farinn að stunda ‘mannrækt’ í World Class en tók það sérstaklega fram að hann ætlaði ekki að básúna um það í hvert skipti eins og ákveðin ‘Pylsa’ sem hann þekkir.  Þar sem ég er augljóslega téð ‘Pylsa’ fannst mér ég bara verða að svara fyrir mig (þakka samt kærlega fyrir að hann hafi ekki kallað mig ‘Pulsu’, sem er auðvitað röng stafsetning).  Það að ég drattist af stað og hreyfi mig er einfaldlega það merkilegur viðburður að það er eins gott að sem flestir viti af því!  Tala nú ekki um þegar það virðist vera ákveðin lenska, t.d. í fótboltanum hjá Guðrúnu, að skeyta ‘lati’ við gælunafnið Laddi og talað um að ég þurfi að fjarlægja tjaldhælana úr skónum og hvaðeina.  Þannig að fyrst ég er nú loksins farinn að taka þetta af krafti þá verður það sko aldeilis básúnað um allar jarðir og helst víðar, og hananú! :D

Annars náði ég merkilegum áfanga í vikunni, án þess að það sé á nokkurn hátt tengt hreyfingu.  Ég gat með góðri samvisku bætt við tvöhundruðasta vininum á Fésbók og sá vinur var ekki af verri endanum, hún Svana beib, og kann ég henni miklar þakkir fyrir að vilja vera fésbókarvinur minn… ;)

En talandi um tölur.  Í dag er víst föstudagurinn þrettándi sem skv. gömlu húmbúkki á að vera eitthvað voðalega spooky og ‘hættulegur’ dagur.  Til er fólk sem neitar að fara í flugvélar eða önnur farartæki á þessum degi og jafnvel lokar sig bara inni til að lenda ekki í óhöppum sem eiga að vera algengari þennan tiltekna dag umfram aðra daga.  En ég get glatt hjátrúarfulla með því að það er nákvæmlega ekki til neitt sem sannar það að þessi dagur sé eitthvað verri en aðrir, það verða ekki fleiri slys eða dauðsföll hvað þá náttúruhamfarir eða þvíumlíkt á þessum degi frekar en aðra föstudaga (tjah, eða bara þriðjudaga ef því er að skipta).  Auk þess er alveg jafn líklegt að þrettándi dagur mánaðar lendi á föstudegi og að hann sé á mánudegi eða fimmtudegi þannig að við erum ekki heldur að tala um eitthvað sem gerist afar sjaldan og sé þess vegna eitthvað meira merkilegt.  Nei, í dag á maður bara að haga lífinu eins og vanalega, labba undir stiga, brjóta nokkra spegla og sparka í svarta köttinn sem er alltaf að labba yfir götuna… :D

Rakst á þessa frétt í morgun sem mér þótti nokkuð merkileg enda tengist hún á margan hátt þessu föstudagurinn þrettánda bulli.  Að sjálfsögðu á ekki að túlka þetta þannig að trúaðir séu heimskir og allir vel menntaðir og gáfaðir séu það ekki, enda snýst þetta ekki um það.  Nei, þetta snýst um það að því greindara sem fólk er, þeim mun líklegra er það til að vera gagnrýnið í hugsun og kaupa ekki allt sem því er sagt eða les hrátt og óbrenglað.  Þetta er einmitt það sama og mér hefur fundist um annarskonar húmbúkk á borð við miðla, spákonur, lófalestur, talnaspeki, andaglas, tarot-spil og hvað þetta drasl nú heitir allt saman, að fólkið sem fellur fyrir þesskonar platvísindum hafi hreinlega ekki nóg af gagnrýnni hugsun til að sjá í gegnum bullið og vitleysuna sem því fylgir.  Sýndu mér miðil eða spákonu sem getur notað krafta sína til að segja mér næstu tölur í Víkingalottóinu og ég skal kannski, hugsanlega, máski skipta um skoðun… ;)

Ein ummæli

  1. Hæ hæ :)

    Ég bíð spennt eftir nýju bloggi. Hvað er að frétta?

Skildu eftir svar