• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Tenglagleði!

A guaranteed failure.  Like eating a burrito before sex…
- Jack Donaghy
Það er orðið frekar langt síðan ég henti inn tenglum á eitthvað sniðugt stöff en örvæntið ekki því ég er sko aldeilis búinn að safna í sarpinn handa ykkur, elskurnar mínar!
Byrjum á máli málanna, nýjasta myndbandi Sigur-rósar sem er þegar búið að banna á YouTube! [...]

Ratfarts!

Djöfull, Júgravisjón kenningin mín stóðst ekki!  Ekki nóg með að Svíþjóð hafi ekki unnið heldur voru þeir actually neðar en Ísland!  Sýnir hvað ég veit lítið um Rússavisjón.  Ekki það að ég hafi fylgst með þessu af miklum áhuga, að vísu var þetta í gangi heima hjá Ragnhildi og Bruno sem buðu okkur heim til [...]

Kenning…

Er með ákveðna kenningu sem hljómar nokkurn veginn svona:  Því verra sem lag er í Júróvisjón (að mínu mati, auðvitað) því betur mun því vegna.  Þetta á klárlega við um íslenska framlagið í ár því það er skelfilega lélegt en náði samt sem áður upp úr undanrásunum (í fyrsta skipti sem Íslandi tekst að komast [...]

Rennandi hress!

Næstum níu árum upp á dag síðan ég horfði á hinn sögulega leik Manchester United á móti Bayern Munched í úrslitum Meistaradeildar Evrópu (United vann 2-1 eins og frægt er orðið) gat ég loksins, loksins aftur glaðst yfir því að United væri besta lið Evrópu!  Fór á Shamrock (pub niðri í bæ) og horfði á [...]

Smokkurinn…

Oddur er víst búinn að ákveða að við tveir erum semsagt að fara að taka þátt í Kaupmannahafnarmaraþoninu á næsta ári, hef greinilega ekkert um þetta að segja.  Heppilega er samt alveg heilt ár til stefnu, nógur tími til að fótbrjóta sig eða slasa sig á einn eða annan hátt til að sleppa við vitleysuna! [...]

Mánudagsmaraþon

Fór í hádegisbíó (12:15) á laugardaginn!  Og til að toppa það fór ég að sjá 26 ára gamla mynd!  Fékk símtal 11:50 frá Björgvini þar sem hann sagði mér (bókstaflega) að hoppa í brækur og rjúka beint út á fákinn og hitta hann við Öresundskollegíið.  Ég var mættur þangað nákvæmlega 5 mínútum síðar og við [...]

Gettin’ a little long…

Bíddu, hvar vorum við?  Já, alveg rétt, síðasta fimmtudag!  Fór semsagt að keppa og það var bara fínt fyrir utan að við rétt mörðum jafntefli á móti mun slakara liði.  Vorum eiginlega ljónheppnir að tapa ekki, lentum 2-0 undir en náðum að jafna í lokin.  Hefðum að vísu getað stolið sigrinum en það gekk ekki [...]

Þegar allt er sagt og gert…

Veit að ég sagði þetta síðast fyrir tveimur dögum síðan, en…
…smokkabuxurnar mínar nýju eru algjör snilld!  Fórum í ræktina í gær og ég henti mér á hlaupabrettið og hljóp í einhverjar 45 mínútur, allan tímann íklæddur smokknum.  Geðveikur munur, meira að segja innanhúss. Hinsvegar verður að segjast að Multi-Sport (ræktin okkar) þarf eitthvað aðeins að [...]

Nuckin’ futs!

Í dag er ansi merkilegur dagur, gott fólk!  Í dag, fyrir nákvæmlega 63 árum síðan lauk síðari heimsstyrjöldinni í Evrópu (lauk ekki í Kyrrahafinu fyrr en í ágúst 1945) og er dagurinn yfirleitt kallaður VE-Day (Victory in Europe).  Við Tótla (nýtt gælunafn sem ég er að prófa) vorum einmitt að ræða þessar heimsstyrjaldir um daginn [...]

Sarpað í safninn…

Það eru ákveðnir kostir og gallar sem fylgja því að ’sleppa’ því að blogga í nokkra daga (næstum viku, í þessu tilfelli).  Kostirnir eru auðvitað þeir að maður hefur frá miklu meira að segja (verður samt ekkert áhugaverðara) en stóri gallinn er sá að þegar maður er búinn að draga þetta svona lengi þá er [...]