• Sarpurinn

  • Nýlegt röfl

  • Myndirnar

    DSC_0129

    DSC_0128

    DSC_0119

    More Photos

Íslenskur piparsveinn…

Ah, ef ekki væri fyrir ‘töfra’ internetsins þá gæti ég ekki verið að njóta þess að horfa á Leitina á Skjá einum í stofunni heima í Köben. Gallinn er bara að þetta er svo vont sjónvarpsefni að það er jafnvel spurning um að fara að horfa á útvarp frekar en þennan óbjóð! Hvar eru allar flottu íslensku dömurnar?!?!? Eru þær allar fráteknar eða einfaldlega ekki nógu desperate til að taka þátt í þessu? En kannski er ég ósanngjarn, það er að sjálfsögðu hægt að sparstla þessar gærur til þannig að þær verði boðlegar, allavega fyrir einhvern á þriðja eða fjórða glasi ;)

Að sjálfsögðu ætla ég samt að horfa á fleiri þætti, því eins og allir aðrir unnendur veruleikaþátta (þátta sem þó eru mjög slæmir) þá verð ég alltaf að sjá hvað gerist næst! Ég tala nú ekki um ef það er nú hægt að fríkka upp á kellurnar og maður fer að sjá eitthvað hold (eins og gerist iðulega í skandínavísku útgáfunum af sama þætti)! Er bara hræddur um að íslenskar stelpur séu farnar að verða of miklar teprur til að verða að ósk minni :( Prove me wrong, girls, prove me wrong…

Og annað, hvað er Páll Ágúst frændi minn að gera í þessu?!?!?!?

Ein ummæli

  1. af hverju öll þessi reiði? hvar er ástin? eigum við ekki að vera þakklát fyrir það sem við höfum? … ég er nú viss um að þetta er skárra en sumir “raunveruleika” þættirnir hérna í dan.. danmarks værste handyman .. wtf?!?

Skildu eftir svar